Færsluflokkur: Bílar og akstur
21.1.2009 | 18:26
Norræna hefur áætlun fyrr en áætlað var
Norræna kemur í fyrsta sinn til Seyðisfjarðar á þessu ári, hinn 3. febrúar næstkomandi, þ.e. tveimur mánuðum fyrr, en áætlað var. Þetta eru mikil gleðitíðindi og hleypir lífi og bjartsýni í austfirðinga. Frændur okkar og vinir í Færeyjum og Danmörku sem sjá um rekstur ferjunnar, eiga þakkir skilið fyrir að sýna skilning á því, að ferðir Norrænu skipta atvinnulíf á Austurlandi miklu. Útflutningur á sjávarafurðum og öðrum gjaldeyrisskapandi varningi hefst nú aftur frá Seyðisfirði og fólk og bílar taka að streyma frá Evrópu.
Áhyggjur eru þó, af færð og veðri á Fjarðarheiði. Þessi eini hluti TERN (Trans European Road Network), stofnvegakerfis Evrópusambandsins sem er tenging Austurlands/Íslands við Evrópu, hefur verið ófær vegna veðurs og snjóa, nokkuð oft að undanförnu. Slysahætta á Fjarðarheiði er mikil og í úttekt EuroRap (European Road Assessment Program) á heiðinni, er hún talin einn hættulegasti fjallvegur landsins!
Brýnt er, að tryggja tenginguna við Evrópu, með göngum undir Fjarðarheiði. Ljóst er, að ef Ísland hyggur á inngöngu í EB, verða stofnbrautir hérlendis, að uppfylla staðla EB fyrir árið 2012.
Hér fylgir ný áætlun Norrænu í febrúar og mars:
SEJLPLAN - GYLDIG 01.02-03.04 | ||||||||||||||||
FEBRUAR | MARTS | APRIL | ALLE TIDER ER LOKALTIDER | |||||||||||||
Dag | Havn | Dato | Dato | Dato | Ank. | Afg. | ||||||||||
LØ | Esbjerg |
| 7 | 14 | 21 | 28 |
| 7 | 14 | 21 | 28 | 09.00 | 15.00 | |||
SØ | til søs | 1* | 8 | 15 | 22 |
| 1 | 8 | 15 | 22 | 29 | til søs | ||||
MA | Tórshavn | 2* | 9 | 16 | 23 |
| 2 | 9 | 16 | 23 | 30 | 05.00 | 14.00 | |||
TI | Seyðisfjörður | 3 | 10 | 17 | 24 |
| 3 | 10 | 17 | 24 | 31 | 09.00 | - | |||
ON | Seyðisfjörður | 4 | 11 | 18 | 25 |
| 4 | 11 | 18 | 25 |
| 1 | - | 20.00 | ||
TO | Tórshavn | 5 | 12 | 19 | 26 |
| 5 | 12 | 19 | 26 |
| 2 | 15.00 | 21.00 | ||
FR | til søs | 6 | 13 | 20 | 27 |
| 6 | 13 | 20 | 27 |
| 3 | til søs |